DHL  Logo

Notkunarskilmálar DHL Express On Demand Delivery

1. Hvað er „On Demand Delivery“?

1.1 DHL Express Iceland (“DHL”) gerir þér sem viðtakanda DHL Express-sendingar kleift að velja afhendingarvalkost fyrir sendinguna þína. DHL kallar þennan valmöguleika „On Demand Delivery“ eða „ODD“ og í sameiningu „ODD-þjónustu“. Þú getur gefið upp hvaða afhendingarmáta þú kýst á vefsvæði DHL Express eða með DHL Express-appinu („vefsvæðinu“ og „appinu“).

1.2 Tiltekin ODD-þjónusta kann að verða skuldfærð. Öll viðeigandi gjöld koma greinilega fram í valferli hverrar ODD-þjónustu.

1.3 Þú getur valið almennar kjörstillingar fyrir afhendingu í framtíðinni og ákjósanlega leið DHL til að hafa samband við þig í tengslum við slíkar framtíðarsendingar með því að skrá þig á vefsvæðinu. Viðeigandi skilmálar eru í ákvæðum 9, 10 og 11 hér að neðan.

1.4 Ef þú skráir þig ekki á vefsvæðinu mun DHL senda tilkynningar um væntanlegar sendingar til þín með þeim samskiptaupplýsingum sem sendandi sendingarinnar gaf upp („sendandinn“). DHL ber ekki ábyrgð á nákvæmni samskiptaupplýsinga sem sendandi gefur upp.

2. Hvað eru þessir notkunarskilmálar?

Þessir notkunarskilmálar („skilmálar“) gilda um notkun þína á vefsvæðinu og ODD-þjónustunni sem er aðgengileg þaðan. Notkun þín á tiltekinni ODD-þjónustu fellur undir ákvæði 15.–25. hér að neðan. Öll flutningaþjónusta sem DHL veitir, þar á meðal öll ODD-þjónusta sem þú velur, fellur undir flutningaskilmálana við sendandann, sem viðauki við þessa skilmála. Vefsvæðið kann að innihalda efni eða virkni þriðja aðila. DHL ber ekki ábyrgð á slíku innihaldi og virkni og framboði þeirra, sem falla undir núverandi útgáfu samningsskilmála viðkomandi veitanda.

3. Notkun vefsvæðisins

3.1 Þú berð ábyrgð á að nota vefsvæðið í samræmi við þessa skilmála, samkvæmt lögum og í góðri trú, til þess að valda ekki DHL eða nokkrum þriðja aðila nokkru tjóni eða skaða (þar með talið á orðspori, og einnig á því að gögn og upplýsingar sem þú veitir DHL í gegnum vefsvæðið séu nákvæmar, fullgerðar og réttar. Þú mátt ekki nota vefsvæðið og/eða ODD-þjónustuna á nokkurn þann hátt sem brýtur gegn gildandi lögum eða þessum skilmálum.

3.2 Nema annað komi fram á vefsvæðinu skal öllum gögnum, skjölum og öðrum upplýsingum vera deilt rafrænt í gegnum vefsvæðið. Þú veitir DHL rétt til að nota öll gögn, skjöl eða aðrar upplýsingar í þeim tilgangi sem tiltekinn er á vefsvæðinu og í tengslum við tiltekna ODD-þjónustu.

4. Hugverkaréttur

4.1 Allur texti, grafík, notendaviðmót, gagnagrunnar, vörumerki, lógó og tölvukóði („efni“), þ.m.t. hönnun, uppbygging, val, tjáning, „útlit og áferð“ og uppröðun slíks efnis á vefsvæðinu er í eigu eða háð leyfi DHL og varin með höfundarrétti og vörumerkjalögum og öðrum hugverkaréttindum. Að undanskildu því sem sérstaklega er getið á um í þessum notkunarskilmálum ODD má ekki afrita, skafa, breyta, endurmynda, endurbirta, hlaða upp, senda eða dreifa efni á nokkurn hátt, í heild sinni eða að hluta til, yfir á aðra tölvu, þjón, vefsvæði eða annan miðil til birtingar eða dreifingar nema með skriflegu leyfi frá DHL.

4.2 Til að mynda, án takmörkunar, skalt þú ekki, ekki reyna og ekki leyfa eða heimila öðrum að:  

a) vendismíða, bakþýða, sundurhluta eða á annan hátt reyna að komast að uppbyggingu eða skipulagi frumkóða vefsvæðisins, 

b) bjóða ODD-þjónustuna og/eða vefsvæðið í heild sinni eða að hluta til til sölu, markaðssetja, dreifa, framselja, úthluta, deila, skiptileigja, (endur-)selja, leigja, leigja til langs tíma, veðsetja eða nota fyrir tölvubúnaðarþjónustu, né nýta í viðskiptaskyni nokkurn hluta efnisins eða gagnanna sem þú öðlast við notkun á vefsvæðinu.

5. Framboð vefsvæðisins

DHL mun kappkosta að tryggja að vefsvæðið sé tiltækt 365 daga á ári að undanskildum áætluðum viðhaldstímabilum. Vefsvæðið telst vera tiltækt svo lengi sem þú hefur aðgang að ODD-þjónustunni í tengslum við einstakar sendingar og, ef þú ert skráður notandi, þú getur skráð þig inn á reikninginn þinn. DHL ábyrgist ekkert um samfelldan rekstur vefsvæðisins né hvað varðar þjónustustig til að greina eða leysa úr tilkynntum vandamálum.

6. Upplýsingatækniöryggi

6.1 DHL tryggir að það haldi úti viðeigandi öryggisráðstöfunum í samræmi við ISO-staðal Alþjóðlegu staðlasamtakanna nr. 27001/2013. Þetta er öll skylda DHL varðandi öryggi upplýsinga og gagna í tengslum við notkun þína á vefsvæði okkar.

6.2 Það er á þína ábyrgð að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana til að tryggja öryggi tölvukerfa og netkerfa þinna (eða, þegar appið er notað, öryggi farsímans eða spjaldtölvunnar), sem og heilleika og trúnað gagna þinna.

6.3 Þú skalt ekki reyna að eða leyfa þriðja aðila að:

a) fá óheimilan aðgang að upplýsingum eða gögnum sem eru ekki þín eða ætlaðar til notkunar þinnar, eða nota upplýsingar og gögn þriðju aðila í leyfisleysi,

b) framkvæma hvers konar öryggisprófanir (t.d. innbrotsprófanir), afkastaprófanir, álagsprófanir eða svipaðar prófanir á vefsvæðinu,

c) nota hvers kyns sjálfvirk kerfi og/eða hugbúnað (þar á meðal skriðla, leitarbotta, vafrainnbætur, viðbætur, íbætur eða aðrar tæknilegar aðferðir eða ferli) til að fá aðgang að, skafa eða breyta vefsvæðinu eða til að afrita, bæta við, hlaða niður eða sækja efni af vefsvæðinu,

d) trufla, breyta, óvirkja, hindra eða skemma aðgengi og hvers konar eiginleika, virkni eða öryggisstýringar vefsvæðisins, 

e) sigrast á, forðast, komast hjá, fjarlægja, óvirkja eða á annan hátt fara fram hjá hvers konar varnarvirkni vefsvæðisins,

f) innleiða vírusa, Trójuhesta, orma, biðsprengjur eða annað tæknilega skaðlegt eða hættulegt efni eða framkvæma (dreifar) atlögur að þjónustumiðlun eða aðrar netárásir, 

g) afla (t.d. með vefveiðum eða (félagslegri) tælingu) og nota eða innleiða skilríki notenda, svo sem notendanöfn, lykilorð og kreditkortaupplýsingar,

h) taka þátt í iðnaðarnjósnum til að sækja gögn og/eða upplýsingar (sérstaklega gögn og/eða upplýsingar um viðskipti eða viðskiptaleyndarmál) með einhverri ofangreindri aðferð.  

6.4 Þú skalt ekki leyfa þriðju aðilum að innleiða ODD-þjónustu og/eða vefsvæðið inn í tækniþjónustu eða reka tæknikerfi á þann hátt að þriðju aðilar eða sjálfvirk kerfi/hugbúnaður geti haft beinan eða óbeinan óöruggan eða óheimilan aðgang að vefsvæðinu.  

7. Bótaskylda og kröfur

7.1 Engar upplýsingar sem fengnar eru með vefsvæðinu skulu skapa ábyrgð sem DHL lýsir ekki sérstaklega yfir í þessum skilmálum. 

7.2 Að því marki sem lög leyfa skulu DHL, hlutdeildarfélög þess eða fulltrúar í engum tilfellum bera bótaskyldu vegna tilfallandi, óbeins, dæmigerðs, refsiverðs og afleidds tjóns, hagnaðarmissis, viðurlaga, sekta eða tjóns vegna tapaðra gagna eða rekstrartruflana eða að öðru leyti í kjölfar notkunar eða vangetu til að nota vefsvæðið og ODD-þjónustuna, hvort sem er á grundvelli ábyrgðar, samnings, lögbrots, réttarbrots eða annarrar lagakenningar og hvort sem DHL er upplýst um möguleika á slíku eða ekki. Án þess að takmarka framangreint skal, að því marki sem lög leyfa, heildarábyrgð DHL vegna tjóns (beins eða óbeins) eða taps í formi aðgerðar eða kröfu, hvort sem er á grundvelli samnings, lögbrots eða annars, í engum tilfellum vera hærri en 100 evrur fyrir hvert tilfelli.

7.3 Hvers konar kröfur í tengslum við rekstur vefsvæðisins verða að vera skriflegar og vera gerðar innan 14 (fjórtán) daga frá tilfelli fráviksins og/eða bilunarinnar.

8. Kringumstæður sem DHL getur ekki ráðið yfir

8.1 DHL mun ekki bera bótaskyldu vegna nokkurs tjóns sem stafar af tilviljun eða kringumstæðum sem DHL getur ekki raunhæft ráðið yfir, þar á meðal náttúruhamförum, fylgni við gerðir stjórnvalda eða annarra yfirvalda, stríði eða neyðarástands, óeirðum, samfélagsólgu, hryðjuverkum, sjóræningjastarfsemi, alvarlegum veðurskilyrðum (svo sem stormum eða flóðum), sprengingu, eldi, glæpum eða öðrum ógnum eða árásum tengdum upplýsingaöryggi (t.d. með tölvuveirum, árásum botta eða öðrum netárásum), notkun þinni á hugbúnaðartólum eða forritum sem ekki eru sótt af vefsvæðinu (eða öðrum vefsvæðum sem DHL heimilar) eða sem eru ekki uppfærð, rafmagnsleysi, grunnstillingarvandamála eða bilana í vinnustöð eða nettengingu þinni, röngum gögnum eða upplýsingum sem þú færir inn, farsótt, heimsfaraldri, læsingum, verkföllum og öðrum atvinnudeilum (hvort sem þær hafa áhrif á undirverktaka DHL eða ekki), skorti á starfskröftum, efni og þjónustu eða vangetu til að afla aðfanga, eða töfum á slíku eða bilun eða takmörkun á afköstum samskiptaneta og gátta annarra veitenda.

8.2 DHL mun leitast við að draga úr áhrifum slíkra kringumstæðna á afköst og/eða framboð vefsvæðisins og/eða ODD-þjónustunnar. Til að taka af vafa telst lokun vefsvæðisins eða ODD-þjónustunnar vegna upplýsingaöryggistilviks eða netárásar alltaf vera aðgerð til að draga úr áhrifum.

9. Gildandi skilmálar fyrir notkun skráðs notanda á vefsvæðinu

9.1 Skráning á vefsvæðinu er ókeypis. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á vefsvæðinu til að fá aðgang að ODD-þjónustunni. Hins vegar þarftu að skrá þig til að velja kjörstillingar þínar fyrir framtíðarsendingar eða til að sérsníða samskipti þín við DHL.

9.2 DHL mun staðfesta skráningu þína með því að senda virkjunartölvupóst, sem gerir þér kleift að setja upp reikning, og þú getur skráð kjörstillingar þínar strax þar á eftir.

9.3 Þú berð ábyrgð á stjórnun og notkun reikningsins þíns og tengdra innskráningarupplýsinga og lykilorða („innskráningarupplýsingum“), þar á meðal í tengslum við notkun þriðju aðila á sömu eða annarri ODD-þjónustu. Þú skalt halda innskráningarupplýsingum þínum leyndum, halda þeim tryggum gagnvart óheimilum aðgangi þriðju aðila og ekki láta óheimilum notendum þær í té. Ekki er hægt að gera neinar kröfur til DHL ef óheimilir þriðju aðilar nota reikninginn þinn eða innskráningarupplýsingarnar.

10. Stöðvun á notkun reiknings skráðs notanda

10.1 DHL áskilur sér rétt til að stöðva notkun reikningsins þíns, tafarlaust og án fyrirvara, í tilfelli (i) misnotkunar, sviksamlegar notkunar, ólöglegrar notkunar og/eða notkunar á vefsvæðinu sem ekki er í góðri trú, (ii) þess að DHL ákvarðar á sanngjarnan hátt að þú hafir brotið efnislega gegn skyldum þínum samkvæmt þessum skilmálum, eða (iii) þess að raunhæfur grunur leikur á um öryggistilvik, (iv) þess að framkvæma þarf óvænta viðhaldsvinnu, eða (v) þess að slíkrar stöðvunar eða takmörkunar er krafist samkvæmt lögum, réttarúrskurði eða beiðni yfirvalda. Þó að DHL framfylgi ekki rétti og/eða réttindum sem það nýtur samkvæmt einu eða fleiri ákvæðum þessara skilmála skal slíkt ekki teljast sem að DHL falli frá slíkum rétti eða réttindum né koma í veg fyrir að DHL krefjist, hvenær sem er í framtíðinni, að þú farir nákvæmlega að samningsákvæðunum.

10.2 Ef þú brýtur efnislega gegn samningsbundum skyldum þínum hefur það ekki áhrif á rétt DHL til lokunar skv. 11. ákvæði eða önnur réttindi og úrræði sem okkur standa til boða.

11. Tímalengd og lokun skráningar

11.1 Skráning á vefsvæðinu er veitt ótímabundið. Þú getur lokað reikningnum þínum hvenær sem er. Auk réttar DHL til stöðvunar skv. 10. grein getur DHL lokað reikningnum þínum með að minnsta kosti 14 (fjórtán) daga skriflegum fyrirvara og mun gera slíkt ef reikningurinn þinn verður óvirkur í 24 mánuði. 

11.2 Í tilfelli lokunar af hvaða ástæðu sem er hefur hún ekki áhrif á skyldu þína til að greiða gjöld fyrir ODD-þjónustu sem þú hefur þegar pantað. 

12. Gildi skilmálanna og einhliða breytingar

12.1 Ef einhver núverandi ákvæði eða framtíðarákvæði skilmálanna verða ógild eða óframfylgjanleg halda önnur ákvæði áfram gildi sínu. Í slíkum tilvikum skal ógilda eða óframfylgjanlega ákvæðinu skipt út fyrir gilt og framfylgjanlegt ákvæði sem líkast er markmiði og tilgangi ógilda eða óframfylgjanlega ákvæðisins. 

12.2 DHL getur hvenær sem er uppfært, takmarkað eða á annan hátt breytt vefsvæðinu, þar á meðal innihaldi eða eiginleikum eða skipt vefsvæðinu út fyrir aðra lausn. 

12.3 DHL getur endurskoðað skilmálana hvenær sem er. DHL mun benda á breytingar á þessum skilmálum á vefsvæðinu.

13. Gagnavernd

13.1 DHL mun safna og vinna úr persónuupplýsingum þínum og gögnum þriðja aðila sem þú gafst upp þegar þú notaðir vefsvæðið og/eða tiltekna ODD-þjónustu (og ef þú skráðir þig á vefsvæðinu munum við einnig geyma slík gögn) í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu Deutsche Post DHL. Upplýsingar DHL um persónuvernd eru fáanlegar á síðunni „Privacy Notice“ (Persónuverndartilkynning).  

13.2 Fyrir tiltekna ODD-þjónustu sem nær til þriðja aðila (t.d. valkostinn „Leave with Neighbor“ (skilja eftir hjá nágranna) kann DHL að nota upplýsingar sem gefnar voru upp um heimilisfang þriðja aðila. Með því að biðja um viðeigandi ODD-þjónustu staðfestir þú að þú hafir fengið samþykki viðkomandi þriðju aðila. Þú samþykkir að gefa DHL sönnun á samþykki viðkomandi fyrir beiðninni.

13.3 DHL kann að bjóða upp á kynningartengla á vefsvæðinu eða í gegnum það. Þessir tenglar eru búnir til af sendanda og DHL ber ekki ábyrgð á samþykki fyrir vefsíðum á kynningartenglum eða framkvæmd slíkra kynninga.

14. Gildandi lög og lögsaga

Nema gildandi lög kveði á um annað skulu þessir skilmálar lúta lögum þess lands þar sem DHL hefur aðsetur og leyst verður úr öllum ágreiningi fyrir dómstólum á þeim stað þar sem DHL hefur aðsetur. Beiting sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samninga um sölu á vöru á milli ríkja er hér með útilokuð. 

ENN FREMUR FELLUR DHL EXPRESS ON DEMAND DELIVERY UNDIR EFTIRFARANDI SKILMÁLA: 

15. Sendingar eru afhentar af DHL að beiðni sendanda og í samræmi við þessa ODD-skilmála. 

16. Framboði ODD-þjónustu er lýst á vefsvæðinu.

17. Ekki öll ODD-þjónusta verður alltaf aðgengileg. Til dæmis getur sendandinn bannað tiltekna ODD-þjónustu og í slíkum tilfellum verður hún ekki í boði á vefsvæðinu. Ef þú ert skráður viðtakandi og ef ákjósanleg ODD-þjónusta er ekki tiltæk mun DHL notast við aðra ákjósanlega ODD-þjónustu þína sem er í boði fyrir sendinguna, og ef enginn annar valkostur er í boði, afhenda samkvæmt hefðbundnu afhendingarferli DHL.

18. Tiltekin ODD-þjónusta kann að falla undir takmarkanir eða fyrirmæli (svo sem öruggan stað fyrir afhendingu) sem sett eru fram á vefsvæðinu. Þú verður að fara að slíkum takmörkunum eða fyrirmælum og DHL mun ekki bera skylda til að afhenda sendinguna í samræmi við val þitt ef þú ferð ekki að þeim.

19. DHL mun virða val þitt um ODD-þjónustu að því marki sem mögulegt er.

20. Ef þú sendir inn fleiri en eina beiðni um ODD-þjónustu fyrir eina sendingu mun DHL taka þá síðustu til greina.

21. DHL áskilur sér rétt til, í undantekningartilvikum, að afhenda sendingar til annarra heimilaðra einstaklinga (staðgengla viðtakanda) eða afhenda til að sækja á þjónustumiðstöð DHL, jafnvel þótt þú hafir ekki beðið DHL um að gera slíkt, ef hvorki þú né heimilaður einstaklingur er á staðnum á afhendingartíma.

22. DHL kann að hafa samband við þig ef beiðni þín er óljós.

23. Ef ODD-þjónusta er valin á meðan verið er að afhenda sendingu (sem kemur greinilega fram á vefsvæðinu) getur það leitt til tafa á afhendingu.

24. Ábyrgð DHL í tengslum við sendingu lýkur við afhendingu í samræmi við viðeigandi ODD-þjónustu. DHL er ekki bótaskylt vegna taps eða tjóns sem á sér stað eftir afhendingu.

25. DHL getur hvenær sem er breytt þjónustum sínum og ODD-þjónustu sem er í boði á vefsvæðinu.